24 september, 2005

Yfirlitsmynd af Runsa og söngleikurinn


yfirlit
Originally uploaded by himbrimi.
Hæ hæ, öll sömul...Þetta er Dosti sem talar!. Já ég er á lífi! og já ég kom með til Svíþjóðar. Hef bara reynt að láta lítið fyrir mér fara.

Góðu fréttirnar eru þó að ég fékk vilyrði frá Vesturporti um að kántrísöngleikurinn sem ég hef verið að semja hérna verður settur upp í vor!!! Takk allir fyrir stuðninginn, ég vissi að ég væri kántríboy.

En aðeins um þessa ljósmynd. Ég býst við fjöldanum öllum af gestum í vetur og sé ekki fram á að geta sinnt þeim öllum nægilega vel. Því bið ég væntanlega gesti um að búa sig vel undir ferðalagið heima t.d. með því að stúdera þessa mynd. Ég klifraði upp í stærsta eplatréð til að taka hana.

1. Er höllin og allt henni tilheyrandi
2. Er íbúðarhús með 2 strákum á aldri við Dag
3. Hér býr vinnumaðurinn
4. Hér búa strákur og stelpa á Dags aldri og Felicia og Josefin sem eru vinkonur Jönu.
5. Í þessum húsi geymum við eldiviðinn, hjólin ofl.
6. Hér er hesthúsið
7. Þetta hús er brunnið (ég kom þar hvergi nærri)
8. Bátabryggjan

Rauði hringurinn sem er í kringum húsið okkar er ekki þarna í raunveruleikanum.

Það sem þið þurfið að koma með hingað eru góðir gönguskór því það er fullt fullt af skemmtilegum gönguleiðum hér í kring. Komið einnig með skauta ef þið komið um vetur. Og góða skapið!!!

kveðja Dosti

5 Ummæli:

Þann sun. sep. 25, 08:48:00 f.h. , Blogger Halla sagði...

Ha, ha, ha... sem sérlegur ráðgjafi og afskaplega góð vinkona óska ég hér með eftir aðalhlutverkinu í Runsa söngleiknum. Er mjög lipur í kántrídönsum og með hugljúfa söngrödd.
kv. Holly garthon

 
Þann sun. sep. 25, 11:19:00 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

sama hér, ég er búin að vera í stífum æfingum á Skagströnd-Kántrýbæ undanfarna vetur. Og er því fullfær um að taka að mér listræna stjórnun eða jafnvel danskennslu.

mbk.ásta pásta
p.s. sendi þessa nótu líka á Jónínu Ben, því það er möst að hafa hana með sér í liði.

 
Þann sun. sep. 25, 09:29:00 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

ég vissi að anna sóley væri að hagræða sannleikanum þegar hún sagði að eplatréð hefði fokið um koll

 
Þann mán. sep. 26, 04:07:00 e.h. , Blogger Dosti sagði...

hehe, a.m.k. er komin góð ástæða fyrir því að tréð er brotið...Anna Sóley veit bara ekki af þessu brölti.

En ég hef tekið tillit til óska ykkar um hlutverk í söngleiknum. Það verður m.a.s. vekjaraklukka á sviðinu með Hellesens batteríum.

 
Þann þri. sep. 27, 08:57:00 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

en verða glitský?

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim