04 febrúar, 2007

bollaleggingar...


was
Originally uploaded by Anna Sóley.
ok það er komið "næst"...(við erum nebblega spennt að heyra viðbrögð).

Eins og sumir vita núþegar ætlum við að flytja til Bandaríkjanna næsta desember. Við erum búin að vera að skoða bækur um þetta risa svæði og lesa okkur til um borgirnar sem eru í boði. Höfum legið á netinu líka og spjallað við fólk. Borgirnar sem voru mest í umræðunni til að byrja með voru NY og San Fran. Einnig voru nefndar Philadelphia, Boston, Portland, San Diego, og kannski einhv fl.
Eins og flestir vita líka eigum við spæjaravinkonu og hún er frá Washington dc, sem var valmöguleiki sem okkur hafði ekkert dottið í hug. En með miklum sannfæringarkrafti hefur henni tekist að setja sína borg mjög ofarlega á listann okkar. Eftir að hafa séð myndir og heyrt lýsingar er ljóst að hún er allt annað en við höfðum ímyndað okkur. Hún er lágreist, mikið af grænum svæðum, gönguborg, mikil safna og matgæðingaborg. Fólk tengir hana bara við þessa þekktu minnisvarða en okkur skilst að þarna sé hægt að búa miðsvæðis í mjög vinalegum íbúðahverfum, sem er kannski mun erfiðara í t.d.NY eða San Fran. Fleiri kostir eru veðrið, árstíðir en STUTTUR vetur, og hún er á austurströndinni. Allavega hér eru myndir frá Washington.

Jæja látið gamminn geysa og allt flakka og allt það, líka ef þið lumið á draumaborginni...

AS og EB og rótlausa fjölskyldan:)

7 Ummæli:

Þann sun. feb. 04, 11:22:00 e.h. , Blogger Una sagði...

já, gaman að spá svona í framtíðina :) Ég hef komið til Washington og fannst hún mjög viðkunnanleg og falleg. Kannast einmitt við þessar myndir af húsunum í miðbænum.

 
Þann mán. feb. 05, 08:59:00 f.h. , Blogger Halla sagði...

Gangi ykkur vel að finna skemmtilegan stað til að búa á í USA. Það eru óteljandi valmöguleikar. Ég hef komið til NY og Boston af þessum stöðum sem þið nefnið.Boston er mjög vinaleg og evrópsk borg. Get alveg mælt með henni. Main og maryland eru flott svæði og gaman að ferðast þar um. NY fylki er líka mjög fallegt.
hilsen
Halla

 
Þann mán. feb. 05, 12:57:00 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

washington dc? þið hljótið að vera að grínast. ömurlegur pittur.

 
Þann mán. feb. 05, 01:14:00 e.h. , Blogger Anna Sóley sagði...

orri jákvæði:)

 
Þann mán. feb. 05, 10:08:00 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

hmmm, þetta virkar nánast hvetjandi á mig :) Þetta hefur ekki rúmast í stóra gráa svæðinu þínu?

 
Þann þri. feb. 06, 09:19:00 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ertu ekki öruglega búin að taka auka kúrs í minnismerkjahönnun ;)

 
Þann lau. feb. 10, 07:10:00 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ekki vissi ég að Orri hefði verið mikið í DC!???
Held að það sem við vitum um þá borg sé mest litað af Marietta sem er þaðan en fluttist til NY til að fara í listaskóla og stunda tónleika. Hún talaði alltaf um borgina sem mjög óspennandi og raunar á Ásta líka einhverjar DC sögur að því mér minnir. Ég hef bara einu sinni komið og var þá 14 ára og tók túr um minnismerkin, sá Hvíta Húsið osfrv.
Sendi nánari email um málið bráðum og skal grilla Orra um vitneskju hans um staðinn...greinilega eitthvað sem ég veit ekki um ;)
Þ.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim