16 febrúar, 2007


kaffi3
Originally uploaded by Anna Sóley.
Endrum og eins tökum við Dosti okkur "söderdag", og njótum þess að búa í útlöndum. Þessar myndir voru teknar á slíkum degi í janúar einhverntímann. Þá förum við kannski seint um morguninn (því söderhverfið vaknar seinna en önnur hverfi), löllum um og í hádeginu laumumst við ofan í yndislegan ósýnilegan kjallara. Þar er alltaf stútfullt af fólki og indverskur matur á boðstólum. Nú svo kannski kíkjum við í eina uppáhaldsbúð, þar sem bara eru seldar ferðabækur og allt sem viðkemur ferðalögum, þar er sko hægt að láta sig dreyma endalaust. Eftir meira rölt er kominn tími á kaffi.

Í þetta sinn fórum við á þetta notalega kaffihús. Takið eftir því að við gluggana eru syllur þar sem fólk klifrar upp og situr á sokkaleistunum í nokkurskonar búri.

Venjulegir dagar eru yfirleitt, talva, borða, talva, borða, póstkassi, talva, borða. Svo þessir dagar eru lífsnauðsynlegir fyrir sálina:)

2 Ummæli:

Þann lau. feb. 17, 08:18:00 e.h. , Blogger Halla sagði...

hljómar frábærlega. Vildi að ég gæti tölt um með ykkur.
Bestu kveðjur frá mér og mínum til ykkar allra

 
Þann sun. feb. 25, 11:24:00 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Kósí.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim