skíði, félagslíf, skóli og súrt þorrablót
Jæja Svíþjóð stendur á öndinni því Anja Person skíðadrottning er að keppa í dag. Ég hló nú bara með sjálfri mér þegar ég las um íslenska skíðakappann sem keppti um daginn, því hann varð fyrir því óláni að missa stafinn sinn í miðri brekku og lenti þ.a.l. ekki ofarlega. Þetta hlýtur að vera einsdæmi! En það er nú ekki langt síðan íslensku gönguskíðamennirnir í Lillehammer klikkuðu á að taka rétta áburðinn með sér, með þeim afleiðingum að skíðin festust við snjóinn. Pínu klúður það...
...alltaf gaman að rifja upp íslensk íþróttaafrek.
Ljúkum veðrinu af, snjór yfir öllu, 5-10 stiga frost og logn. Ekta vetrarveður og takk fyrir lognið!
En mig er farið að lengja eftir vori, hef ekki þolinmæði í þetta.
Dagur er orðinn mjög virkur í félagslífinu, fer stundum eftir skólann með vinum sínum að borða pizzu eða í bíó. Það er fínt að hitta líka krakka utan Runsa. Annars eru þeir Oscar nágranni bestu félagar og hittast næstum daglega.
Á Íslandi var ég stundum að skammast yfir því hvað það væri mikill heimalærdómur og óska þess að hann væri minni. Hér aftur á móti er nánast engin heimavinna og sjaldan próf og þá bregður svo við að okkur líst ekkert á ástandið og erum hrædd um að hann sé ekki að læra nóg og dragast aftur úr jafnöldrum á Íslandi. Aldrei hægt að geðjast manni!
Dosti er alveg svakalega duglegur í lærdómnum (fyrir þá sem misstu af, þá er hann að gera rannsóknaverkefni með kennara í HR) og gengur bara vel sýnist mér. Hann þarf að fara heim um miðjan maí til að halda kynningu á verkefninu.
Hann fer mjög oft á tónleika hér af ýmsum stærðum og gerðum. Við ætlum loks saman á tónleika í lok mánaðarins, það verður gaman.
Að lokum má geta þess að hann var gabbaður í að halda fyrirlestur um Ísland á Rotaryfundi hér!!! hahahaha! Hann ákvað að eyða mestum hluta í að tala um virkjanamálið og mér heyrðist á honum að fólki hefði verið ansi brugðið. Já og best að gleyma ekki aðalatriðinu: hann er barasta kominn í framboð í Íslendingastjórn sem gjaldkeri held ég. Það eru miklar og dramatískar kosningar um helgina og mikið verið að plotta. Algjör brandari að fylgjast með þessu. Félag sem var í dauðateygjunum en nú er slegist um að berja það í gang. Spennandi. Er þetta ekki bara fyrsta skrefið hans í átt að Sameinuðu þjóðunum, muna ekki allir örugglega eftir því að hann ætlar að taka við Kofi.
Ég er á fullu í Second Life (sjá póstinn á undan) og er þar að þróa BEGINNERS TRAIL -navigating Second Life. Nánari útskýring á því næst!
Mér leist ekkert of vel á þennan heim fyrst en núna er það að breytast. Ég hef samt ekki þol í að vera of mikið í svona virtual heimi. En þetta er dáldið skondin reynsla. Þegar við í bekknum erum ekki að tölvast í Second Life, þá lesum við ferlega þunga texta eftir þýska heimspekinga (t.d. Adorno og Hockheimer) frá 1930 og gerum allskonar verkefni í sambandi við það.
Það varð smá uppistand um daginn þegar við vorum að kynna hópverkefni. Einn hópurinn sýndi Muhamed teikningarnar í kynningunni sinni sem dæmi um eitthvað sem tengdist textunum. Ein sem horfði á mótmælti og sagði að ekki ætti að halda áfram að sýna myndirnar, þó við værum bara lítill hópur í kennslustofu. Úr þessu spunnust miklar umræður...
Þessi hópur er ÞÚSUND sinnum betri en fólkið sem ég var með fyrir jól, þvíííílíkur munur. Eins og svart og hvítt!!!
Það er mikill léttir get ég sagt ykkur. Mér var ekki farið að lítast á blikuna með Svíana.
Svo förum við saman um páskana til Króatíu og Albaníu í viku, ég hlakka svo til.
Held að við höfum selt Stuðlabergið á réttum tíma, sá nefnilega að nú á að fara byrja að byggja nýtt hverfi við hliðina á gamla húsinu okkar, hjúkk.
Margir hér segja við mann : "Tungur knífur" og brosa svo breitt. Fyrir þá sem ekki vita er þetta úr Hrafninum hans Hrafns, held ég allavega, svo þessi mýta um að hann sé hetja hér er kannski eftir allt rétt! Þó held ég að þetta séu aðallega karlar og strákar sem hafa séð hana. Margir jafnaldrar okkar hafa séð 101 Reykjavík og eru sjúk í að prófa djammlífið þar. Annars virðast allir rosa spenntir fyrir landinu og margir minnast á það að margir skrítnir tónlistarmenn komi héðan. Það þarf að vísu ekki mikið til að Svía þyki eitthvað óvenjulegt.
Emmm... Þorrablótið, á maður að fara tala um það?
Í stuttu máli, Ómar blístraði og söng dónavísur, Guðmundur Árni sendiherra sagði FH brandara, veislustjórinn sagði mús-limabrandara, og Geir H Harde söng sig inn í hjörtu landsmanna (eða þannig) með Tondeleijóóóó...
ahhh, úff, hvað getur maður sagt.
ó já ekki gleyma, hljómsveitin Kusk frá Hornafirði og ég vann ekki flugmiða í happdrættinu mér til mikillar furðu.
7 Ummæli:
ég keypti 101 reykjavík myndina um jólin, ætla að hefja reglulega sýningartíma til að kynna djammlífið fyrir asíu- og evrópubúunum. Djammlífið og óreglulegt veðurfar...
Ég vildi bæta einu við. Þið sem þekkið AS vitið sjáið að hún hefur ekkert breyst. Hún sagði í dag að hún væri pínulítið farin að kvíða kuldanum á næsta vetri...Það er auðvitað hámarkið að vera í mesta kulda lífs síns og kvíða fyrir framtíðarkulda eftir hitann.
Þetta þorrablótsdæmi er svo rosalegt að ég er orðlaus.
lofa að mæta eftir ár.....
Gaman að fá fréttir af ykkur. Skondið að ég er einmitt líka að lesa Adorno og skrif hans um popular music. Er bara ansi hrifin af kallinum þó hann sé soldið snobbaður.
Þetta með "Tungur knivur" er alger plága man ég. Allir þeir svíar sem við hittum í NY og seinna í Sverige sögðu þessa setningu við mann. Ég var farin að kynna mig í Svíðþjóð sem Þórdís, já íslensk, já tungur knífur í einni bunu. Merkilegt að Hrafninn skuli vera svona greiptur í þjóðarsál Svía.
Talandi um 101 þá á einmitt að sýna hana hér í lok mánaðarins og ég ætla að fara með tveimur skólafélögum svona uppá djókið. Sá um daginn "Maður eins og ég" (hélt ég væri að fara á nýju myndina hans Robba) og það var skondið að fylgjast með viðbrögðum áhorfenda því þeir hlóu á allt öðrum stöðum en ég.
Þorrablótið hljómar svo hræðilega að ég get ekki sagt orð en ferðin til Króatíu og Albaníu verður örugglega frábær.
Baráttu og kosningakveðjur til þín Dosti og knús til krakkana... og þó Dagur virðist vera vaxinn uppúr svoleiðis kveðjum, segðu bara "keep it real!" við Dag.
Þ
haha skondið með Adorno. Las líka eitthvað eftir Walter Benjamin, það fannst mér mjööög erfiður texti. Maður hefur víst gott af að göslast í gegnum þetta.
Já tungi knívurinn er toppurinn, og alltaf eru þeir jafn steiiinhissa að maður hafi ekki séð myndina!!!
ég er sammála ástu að mér finnst þetta þorrablót svo spennandi að ég held bara að ég komi líka með á næsta ári ;o) "Tungurknivur"..hef aldrei heyrt þessa setningu þrátt fyrir að vera "mikill" aðdáendi hranfs. Hér í danaveldi hefur engin áhuga á íslandi, nema einn gamall maður sem fannst ég ekki standa mig nógu vel í dönskunni miða við að þeir hafi nú ÁTT ísla. í denn (ekki að fatta að þá töluðum við líka ÍSLENSKU) ég verð nú að segja að mér finnst secondlife verkefnið meira spennandi en það sem ég var að læra í dag, sat frá 8-15 og hlustaði á fyrirlestu um thermoplöst, hörðplöst og gummí...var byrjuð að slefa af áhuga undir lokin hahaha.
góða helgi
kv. halla
ekki vanmeta skemmtanagildi plastsins, enda veit þinn betri helmingur allt um það!!! hahahaha!!!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim