25 september, 2007

Hver vill hjálpa til á fimmtudaginn við að flytja smáræði?

Stór Dagur og Jana!

95 kílóa farangur af golfdóti og innritunardaman sagði vinalega að við ættum að muna að 40 kíló væri hámarkið fyrir 2 farþega.

Dagur varð semsagt meistari um helgina!!!

Með leðrið góða!
Stigin reiknuð


Þátttakendurnir við verðlaunaathöfnina.
Lokastaðan

Og Jana fór í fyrsta sinn í skólann í dag, og gekk eins og í sögu! Dagur fór að vísu líka í fyrsta sinn í Austurbæjarskóla og gekk vel. Við vorum a.m.k. steinhissa á hvað hann var ekki stressaður yfir þessu.

Jana á leið í skólann.

15 september, 2007

Skítverk?

Ég var að fá símtal frá manni með sterkum Puerto Ricoskum hreim:
"Your wife called me on Thursday about a job that she said needed to be taken care of..."

Ef ég kem ekki heim á tilsettum tíma hafið þið þetta blogfest. Hann hringdi í heimasímann kl 10:05 á laugardagsmorgni 15 sept. Símanúmer: Unidentified!

14 september, 2007


giraffi
Originally uploaded by Anna Sóley
Maður rekst á margt skemmtilegt við pökkun. Ég fann eina af fyrstu dýramyndunum sem Jana teiknaði. Óborganlegur gíraffi finnst mér.

13 september, 2007

Síðasta vikan...

Nú eru síðustu myndirnar úr Íslandsferðinni komnar. Hvað er svo að frétta? Það er nóg að gera allavega, allir hamast við að setja í kassa og Dosti reynir að læra inn á milli. Honum gengur vel í lokaverkefninu og hefur fengið mjög jákvæð viðbrögð við því sem komið er. Dagur er í heimaskóla sem þýðir að hann lærir frá morgni til ca hálf fjögur, en þá fer hann út á völl. Við erum með skólabækurnar úr Austurbæjarskóla og reynum að halda í við samnemendur hans heima, þetta gengur bara nokkuð vel. Ég segi bara: eins gott að hann fékk tækifæri til að vera með "einkakennara" þennan mánuðinn því hann þarf ansi mikla hjálp í fögunum sem reynir á orðaforða og að skrifa texta á íslensku (sem er allt nema stæ og eðlisfr). Þetta bjargast allt! Dagur er akkúrat núna í heimsókn í bekknum sínum gamla og er að kveðja alla.

Gámurinn ógurlegi kemur á mánudagsmorgun og við ásamt Carli og Manosi höfum 3 klst til að fylla hann. Hlökkum til (eða ekki). Svo gistum við í íbúð Sophie í höllinni, en hún er skiptinemi í Kanada núna. Nú svo fljúgum við Jana, föstudaginn 21.sept til Íslands og strákarnir mánudaginn eftir. Styttist heldur betur...

Jana er í miklu drama eins og venjulega á leikskólanum, allt í góðu samt:)
Hún er að kveðja alla, fer yfirleitt heim með mismunandi vinkonu hvern dag eftir leikskóla, það verður mikil sorg að skilja við alla. Svo skipti hún aftur um kærasta, nú er það Noel vinur hennar en þau voru par fyrst. Hún sagði að Úlle hefði grátið í kaffitímanum yfir þessu svo ég held hún hafi tekið það að sér að finna nýja fyrir hann. Sooooldið stjórnsöm ha!?


IMG_2076
Originally uploaded by Anna Sóley
Við Jana fórum á Kjarvalstaði, næstu 4 myndir.


IMG_2065
Originally uploaded by Anna Sóley


IMG_2047
Originally uploaded by Anna Sóley


IMG_2050
Originally uploaded by Anna Sóley


IMG_2024
Originally uploaded by Anna Sóley
Loki, Kári, Eyja og Jana í Grasagarðinum.


IMG_1880
Originally uploaded by Anna Sóley
Breki bróðir og Jana, melónupottormar.


IMG_1894
Originally uploaded by Anna Sóley
Sumarsól í Stykkishólmi! (ég og mamma)


IMG_1909
Originally uploaded by Anna Sóley
zzz...

11 september, 2007


IMG_2085
Originally uploaded by Anna Sóley
Mig hafði dreymt um Þingvelli í nokkra mánuði. Sigga lét draum minn rætast síðasta daginn á Íslandi. Það voru engin vonbrigði. Í þokkabót lentum við í mesta berjamó sem ég hef nokkurntímann séð...
(Jana að tína ber)


IMG_1951
Originally uploaded by Anna Sóley
Magnað þetta sumar... við mamma sátum NOKKRUM sinnum úti á Austurvelli og borðuðum, og það var hlýtt! mmm...pant alltaf svona sumarveður á Ísland.


IMG_1946
Originally uploaded by Anna Sóley
Jana og tré.


IMG_1922
Originally uploaded by Anna Sóley


IMG_2033
Originally uploaded by Anna Sóley
Hausarnir á Jönu og Loka, horfa löngunaraugum á blöðruorminn á Gay pride.


IMG_2038
Originally uploaded by Anna Sóley
Þessir fannst mér flottastir, bæði hvað varðar útlit og göngulag.


IMG_1854
Originally uploaded by Anna Sóley
Kommi og báturinn hans sem hann bauð öllum á í mislangar ferðir um eyjarnar þarna í kring, frábær upplifun.


IMG_1620
Originally uploaded by Anna Sóley
hey hó er ekki sjómannadagurinn í dag?


IMG_1638
Originally uploaded by Anna Sóley
Jana og Dosti.


IMG_1636
Originally uploaded by Anna Sóley
Strákahollið í bátsferð, komu tilbaka með nokkra fiska.

10 september, 2007

Dagur Golfari

Það brá aldeilis til tíðinda um helgina. Dagur sigraði á helgarmótinu og helstu andstæðingarnir náðu ekki góðum úrslitum. Það getur því enginn náð honum að stigum þegar 2 umferðir eru eftir. Það þýðir að hann sigraði bæði á vor og haustmótinu og þ.a.l. samanlagt. Leðrið kemur því til Íslands. Til hamingju DAGUR!!! glæsilegt!!!

Staðan
http://www.wasbygolfjunior.org/juniortour/OM07host.html

08 september, 2007

Glens í Grikklandi













Hvað vegur allt sem þú átt?

Ég ætla nú ekki að rekja í smáatriðum brandarann sem er búinn að vera í kringum tilboð frá skipafélögunum um að flytja gáminn okkar. En til að gera langa sögu stutta er eins gott að við byrjuðum einum og hálfum mánuði áður!

Samskip voru þó skrefinu á undan (Eimskip gubbaði að vísu tilboði núna í vikunni - svona vinnubrögð eru fyrir neðan allar hellur - ef þið lesið þetta.) En þegar Samskip fór í gang gerðu þeir það líka með trompi! Svíi hringdi í okkur og ætlaði að gera okkur tilboð sem við gætum ekki hafnað. Við höfðum pantað 20 feta gám en hann vildi spyrja mig hvað ég giskaði á að innbúið væri þungt!?! - ég meina?!?, það er nógu erfitt að meta innbú fjárhagslega til að tryggja það. En á maður líka að meta þyngdina? Ég veit í alvöru ekki hvort væri betra svar að segja 1 tonn eða 5 eða 20? Ég hef enga tilfinningu fyrir þyngd nokkurs umfram smjörlíkis. Hvað ætli innbúið sé mörg smjörlíki? 50.000? Og hvað ef það eru 90.000? brjótum við þá þyngdareitthvað eða? er það refsing? sekkur skipið? Ég sef ekki lengur, hugsa bara um alla hlutina, allar skeiðarnar...þurfum við að eiga svona margar? Af hverju eigum við ekki léttara innbú? Hafa þetta í huga næst þegar við kaupum hluti...En nú skil ég "að vega og meta", það er það eina sem ég geri þessa dagana...

Ævisaga Dosta - Þriðja bindi, Drykkfelldi Heimdellingurinn

4. Kafli - Hvernig ég varð alki
Þegar 2 vikur voru í að búslóðargámurinn yrði sendur í heimahagana var ég að lesa í gegnum reglugerðamannvirki íhaldsins. Hrollur hríslast stöðugt um mig yfir höftunum á innflutningsheimildum og boðunum og bönnunum. Brá mér þó einna mest þegar ég rak augun í eftirfarandi: "Áfengi og tóbak í búslóðum er ekki tollfrjálst; við komu til landsins geta þeir sem flytja búferlum notið tollfríðinda sem ferðamenn hvað varðar þess konar varning."

Gekk ég hægum skrefum í átt að vínskápnum og vonaði innst inni að við ættum bara 4 léttvínsflöskur en ástandið var miklu verra en ég gat ímyndað mér. Skápurinn var stútfullur af vínanda enda er varla smakkað á sterku áfengi á þessum bæ heldur safnast það upp eins og hráviði. Hvaðan það kemur veit enginn! En engu að síður var ljóst að það væri synd að farga því, sérstaklega þegar verðmætin voru umreiknuð yfir í krónuna sterku.

Úr varð að ég gerði drykkjuplan fyrir 14 daga. Útgangspunkturinn var sá að ég yrði aldrei svo slöraður að ég gæti ekki keyrt bifreiðina enda í nógu að snúast svona rétt fyrir flutning. Því voru sjússarnir dreifðir yfir sólarhringinn. Skemmst er frá því að segja að þessar 2 vikur breyttust í 24 ár og nú er ég enn lunkinn við að keyra Volvóinn þótt drukkinn sé. Ég er að vísu enn í Svíþjóð enda áfengið miklu ódýrara hér. Nú er ég alltaf c.a. 24% VOL viss um að kannski hefði ég átt að farga helvítinu.

07 september, 2007

mafian


mafian
Originally uploaded by Anna Sóley


IMG_1654
Originally uploaded by Anna Sóley
Fórum saman vinahópurinn til Stykkishólms í nokkra daga. Algjör sæla og stanslaust stuð allan tímann!!!


IMG_1657
Originally uploaded by Anna Sóley
Mikið var hún Eyja góð við Jönu.


IMG_1634
Originally uploaded by Anna Sóley
Jana pana.


IMG_1627
Originally uploaded by Anna Sóley
Jana og Eyja ræða um sjávarútveginn.


IMG_1788
Originally uploaded by Anna Sóley
Fór í fyrsta sinn (síðan ég byrjaði á lokaverkefninu) á lóðina sem ég valdi úr fjarlægð fyrir Spa verkefnið. Þetta var gott val, ótrúlegur staður, og gott að fá staðfestingu á því:)


IMG_1801
Originally uploaded by Anna Sóley
Krakkaskarinn í stærðarröð, vantaði tvo sem eru ekki búnir að læra að standa.


IMG_1794
Originally uploaded by Anna Sóley
fótboltagengið


IMG_1760
Originally uploaded by Anna Sóley
Núna er Eyja á þeim aldri sem ég kynntist Þórdísi, og það var algjör upplifun fyrir mig! Það er ekkert lítið sem hún minnir mig á mömmu sína...ég var semsagt í stöðugu nostalgíukasti yfir þessu.


IMG_1745
Originally uploaded by Anna Sóley
Ásta með Úlf, og Jana.


IMG_1608
Originally uploaded by Anna Sóley
Það var stundum þröngt og þurfti að borða í hollum:)


IMG_1718
Originally uploaded by Anna Sóley
"ofurhalla"


IMG_1651
Originally uploaded by Anna Sóley
Spilastund hjá krökkunum, Kári, Dagur, Jana, Eyja og Loki.


IMG_1731
Originally uploaded by Anna Sóley
Jana, Þórdís með Flóka í fanginu og Kári.


IMG_1611
Originally uploaded by Anna Sóley
Kommi og Úlfur

05 september, 2007



Originally uploaded by Anna Sóley
Elísabet Rún systir mín og ég. Þær systur eru mjög frumlegar og framtakssamar í blaðaútgáfu. Þær gefa út tímarit reglulega og allt efnið í þeim gera þær sjálfar, ljósmyndir, myndasögur, viðtöl, kannanir og margt fleira. Mjög flott hjá stelpunum. Þarna er ég að skoða nokkur blöð í matarboði í Mjóuhlíðinni.