31 júlí, 2006

Ég er með fótboltameiðsl!


Ég er með fótboltameiðsl, ég er með fótboltameiðsl, ég er með fótboltameiðsl. Ég fæ ekki nóg af því að segjast vera með fótboltameiðsl því ég hef ekki fengið þau áður (enda gefið fá færi á mér :)

Ég er sárþjáður, hef varla getað gengið í 3 daga, en með undalega góða tilfinningu á sálinni sem hríslast um líkamann yfir að vera með fótboltameiðsl eins og Eiður Smári og fleiri geta fengið...

En þá er sá kafli líka búinn í mínu lífi og þá ætla ég að hætta í boltanum, leggja skóna á hilluna, taka upp flautuna frekar...eða frakkann á hliðarlínunni eða bara byrja að baka.

24 júlí, 2006

Ógeðsfiskur

Ég hef nokkru sinnum farið að veiða hérna í vatninu okkar en aldrei tekist að fanga neitt. Ég hef líka verið að notast við íslenska spúna og drasl sem einn sænskur veiðimaður hló að þegar ég sýndi honum. Ég fór því í IKEA og keypti svona vatnakitt sem á að virka á alla sænska vatnafiska. Ég fór með Bergi út um helgina á bátinn og veiddi minn fyrsta fisk á nýju græjurnar. Hann reyndist vera hinn mesti ógeðsfiskur. Hann var með gaddaugga, hryllingstennur, ljótur og bara allur óhugnanlegur viðkomu. Að auki var hann ódrepandi. Jafnvel þegar hálfur heilinn var hálfur lafandi út fékk hann æðisköst og stökk út um allan bát slettandi blóði í allar áttir og reyndi að skaða okkur með önglunum sem héngu úr honum.

Eins og allar veiðiferðirnar sem ég hef farið í hér á vatninu hafa verið tíðindalausar og róandi fyrir sálina varð þetta hálfgerð martröð. Við vorum tiltölulega nýbyrjaðir að fiska þannig að við vorum ekki alveg á því að fara í land þótt okkur væri það skapi næst eftir tilkomu þessa óskapnaðar. Hann var svo skelfilegur! Við héldum þó áfram að veiða en Bergur talaði fyrir okkur báða þegar hann sagði í mikilli einlægni "Ég vona að við veiðum ekki fleiri fiska!".

Ég sakna silunga! - ég ætla að nota áfram íslensku spúnana sem ég er viss um að veiða ekkert úr þessu vatni.

13 júlí, 2006

smá ruglingur á myndum hér...

fyrst koma 4 Íslandsferðarmyndir, svo 3 allt í einu frá Svíþjóð eftir heimkomuna, svo halda Íslandsmyndirnar áfram.


a
Originally uploaded by Anna Sóley.
Jana jarðaberjastelpa!


b
Originally uploaded by Anna Sóley.
Jönu fannst voða gaman að knúsa frænda sinn :)


c
Originally uploaded by Anna Sóley.
Strákarnir spiluðu út í eitt!


d
Originally uploaded by Anna Sóley.
Matarboð í Barmahlíðinni, foreldrar Dosta, við og Bjarni sjást hér.


20
Originally uploaded by Anna Sóley.
Hjónin sóttu okkur út á völl, off kors. Þau buðu okkur að koma í "smásnarl" um kvöldið. Þetta "snarl" reyndist vera hátíðarmálsverður með grilluðum laxi, afmælisköku og pökkum!!! (og ekki bara ég fékk pakka, heldur líka krakkarnir). Mögnuð.


25
Originally uploaded by Anna Sóley.
Fína kakan!


26
Originally uploaded by Anna Sóley.
Dagur að pumpa í bátinn sem þau gáfu honum, hann hefur verið mikið notaður núþegar (meira um það síðar).


3
Originally uploaded by Anna Sóley.
Dagur, Jana og Eyja.

Eyja, ég gleymdi að segja þér eitt: þegar við vorum í Stykkishólmi þá leyfði ég Jönu að sjá Stundina okkar. Þá vildi svo til að það var akkúrat verið að endursýna þegar þú varst að dansa manstu í grísatriðinu, þetta var frábær tilviljun!


5
Originally uploaded by Anna Sóley.
Hittum Ástu, Orra og Eyju í Hljómalind. Misstum því miður af Kára og var Þórdísar sárt saknað :(


4
Originally uploaded by Anna Sóley.
Fórum m.a. til Borgarfjarðar í hjólhýsi og það var alveg frábært. Þarna eru Dagur og Ásta að stýra flugdreka. Á kvöldin sátum við inni í notalegheitunum með rokið var alls ráðandi úti. Notuðum við þennan gæðatíma til að kenna Degi Kana, og fékk hann ekki að fara að hvíla sig fyrr en í fyrsta lagi á miðnætti!


6
Originally uploaded by Anna Sóley.
Jana í mjúku sængurbæli í hjólhýsinu.


1
Originally uploaded by Anna Sóley.
Eitt af mörgum frábærum matarboðum var hjá pabba, því miður mundum við bara stundum eftir myndavélinni.


8
Originally uploaded by Anna Sóley.
Í boltaleik.


9
Originally uploaded by Anna Sóley.
Systur mínar, Elísabet Rún og Elín Edda, sjást þarna (bláklæddu verurnar) og þær höfðu stækkað ótrúlega mikið á þessu eina ári. Jönu langaði að hoppa út til þeirra.


10
Originally uploaded by Anna Sóley.
Elín Edda vinkar.


13
Originally uploaded by Anna Sóley.
Fórum á uppáhaldsströndina, Skarðsvík á Snæfellsnesinu, mikið er fallegt þarna.


17
Originally uploaded by Anna Sóley.
Við stelpurnar komnar í gallana og ÖLL kuldafötin og tilbúnar í slaginn.


16
Originally uploaded by Anna Sóley.
Dosti stóð þarna í kuldanum til að byrja með...


22
Originally uploaded by Anna Sóley.
Þegar Dosti fékkst undan klettinum fór hann á flug, og tók þvílíkt höfrungastökk að menn muna ekki annað eins! Ekkert fótósjoppað hér, eins og snjókallinn forðum.


23
Originally uploaded by Anna Sóley.
Þarna er ég að reyna að ná hoppi en af annari erfiðleikagráðu.


14
Originally uploaded by Anna Sóley.
Mikið er maður kappklæddur hér upp í kletti á Snæfellsnesinu.


15
Originally uploaded by Anna Sóley.
Ásta pásta:)


7
Originally uploaded by Anna Sóley.
Jana og Ásta láta fara vel um sig í Stykkishólmi, takið eftir því að skrautið er skandinavískt.


11
Originally uploaded by Anna Sóley.
Ef það fór framhjá einhverjum (haha) þá átti ég afmæli á Íslandi, og fékk ég höfðinglegar afmælismóttökur í Stykkishólmi!


12
Originally uploaded by Anna Sóley.
Þessi ferð okkar bar nokkurn svip af HM því miður, en þó má segja að þetta hafi verið hápunkturinn: þegar Ásta bar þennan fótboltabol sem hefur m.a. unnið tískusýningu í virðulegu tölvufyrirtæki:)


19
Originally uploaded by Anna Sóley.
Við Jana með ömmu og Siggu frænku.


18
Originally uploaded by Anna Sóley.
...ooooog berjast!


21
Originally uploaded by Anna Sóley.
Jana og Auðun Loki leika sér með einhverja voðalega skemmtilega hringi hjá Ástu.


24
Originally uploaded by Anna Sóley.
Jana og Auðun Loki hittust á ný

11 júlí, 2006

HEIM Í SÓLINA :)

Þá erum við komin heim til Runsa, það er alltaf góð tilfinning, og þetta er okkar "heim" núna. Ferðin til Íslands var auðvitað alveg frábær, þrátt fyrir drulluskítaveður ;)

Við náðum að hitta svona 85 prósent af þeim sem við vildum, nokkuð gott bara skilst mér. Fórum í útilegu, sund,Stykkishólmsferð og mörg mörg frábær matarboð, og græddum í leiðinni nokkur kíló! Inn á milli höfðum við það svo ofsalega gott í Grundarlandinu þar sem var stjanað við okkur á allan hátt.

Dagur fór nokkrum sinnum í golf og nokkrum sinnum í gömlu götuna okkar að hitta vinina. Nokkrar tilraunir voru gerðar til að grilla og það endaði í öll skiptin með því að Dosti hékk kappklæddur yfir grillinu í lengri tíma til að halda einhverjum varma gangandi í grillinu! Ó já Ísland! Með smá fjarlægð í okkur tókum við eftir því að þjónustan í Reykjavík er ömurleg, malbik og bílaslaufur eru ráðandi, fuglar voru áberandi fáir en náttúran alltaf jafn einstök. Tíminn leið ótrúlega hratt og allt í einu vorum við á leið til Stokkhólms aftur.

Hjónin komu auðvitað út á völl að sækja okkur, og á 2 bílum því þau héldu að Breki væri með. Svo buðu þau okkur í snarl um kvöldið. Það reyndist síðan vera þvílíkur afmælisverður með laxi, afmælisköku og gjöfum fyrir afmælisbarnið og reyndar líka pakkar fyrir krakkana!!! Þau eru mögnuð eins og venjulega!

Í dag kom elsku Breki til okkar, pínulítið lemstraður eftir fótboltamót en í góðum gír samt. Hér hefur verið sól og 26-30 stiga hiti síðan við komum, í dag er reyndar skýjað og 20 stig, en spáin er góð. Við ætlum að gera margt skemmtilegt saman meðan Breki er hjá okkur, ýmis plön. Dosti er reyndar að vinna á daginn en það gerir hann í tölvunni heima.

Ein frétt er að við ætlum í stutta ferð til New York 19.ágúst í 5 daga!!! Þetta kemur til af því að þetta grænakortsmál gekk í gegn meðan við vorum á Íslandi. Eftir að við höfðum gengið í gegnum allar skoðanirnar og pappírana og farið með "æ solemní sver..." (hahahaha) fyrir sendiráðsfólkinu var málið í höfn. Við þurfum að fara til USA til að virkja þennan rétt og því förum við í þessa ferð. Dýrt spaug þetta! En mikið erum við samt spennt fyrir þessari ferð.

myndir koma fljótt!

as