28 febrúar, 2007

Vasa? Fyrirsagnirnar tala sínu máli



Originally uploaded by Anna Sóley.
eftirlegukindur

Nokkrar áramótamyndir áttu alltaf eftir að birtast, Dosta fannst það svo skammarlega seint að við gerum þetta svona: ef þið viljið sjá hinar áramótamyndirnar þá smellið þið á þessa hér og komist þá inn í myndabankann.

19 febrúar, 2007

Hrognamálakennsla 101

Það er ekki ósjaldan sem Dagur hneykslast á sænskunni minni, ég ber víst það litla sem ég kann alveg kolrangt fram. Ég tala lang-lélegustu sænskuna á heimilinu enda hef ég minnst þurft að nota hana af okkur síðan við fluttum hingað. Ég var því ákaflega stoltur þegar ég tilkynnti fjölskyldunni í dag að þrátt fyrir að verða fyrir aðkasti á mínu eigin heimili væri ég fyrsti sænskukennarinn í fjölskyldunni. Ég gerði nefnilega samning við grískan vin minn um að kenna honum sænsku fyrir gítarkennslu. Grikkinn hefur engar ranghugmyndir um getu mína í sænsku en hann lætur mig duga þangað til annað og betra býðst.

Dagur bara gapti þegar hann sá pabba sinn í fyrsta sinn sem fúskara. Hann setti upp áhyggjusvip og sagði með innilegum hryllingi "Hugsið ykkur hvernig sænsku hann lærir!" ;)

Já og að lokum, Kannist þið við Dag?
Hann er á fullu í golfæfingum tvisvar í viku og þeir eru 8 strákar með 4 kennara sér til stuðnings. Hann mun síðan fara til S-Svíþjóðar í golfferð í apríl því þar byrjar sumarið 3 vikum fyrr ;)

vor og sumarplön

Það er kannski ágætt á þessu stigi að dúndra út upplýsingum um næstu mánuði, það sem vitað er á þessu stigi.

Sko Ella og Sonja koma 1.mars, Halla og co kannski í byrjun apríl. ALLIR eru velkomnir til ca 8.apríl...

Hér verður lítil gestrisni milli 8.apríl og 8.júní, nema fyrir þá sem vilja passa eða elda:)

Ég kynni lokaverkefnið mitt einhverntímann milli 4.-8. júní, ég er virkilega farin að hlakka til þess áfanga. Svo dagana eftir það er bara smotteríssmáverkefni og frágangur fyrir lokaverkefnið. Þannig að allir eru rosalega velkomnir eftir ca 8.júní og alveg áfram út sumarið og haustið o.s.frv.

Nú svo er lauslega búið að ákveða að koma til Íslands í júlí, og þá getur jafnvel verið að ég verði lengur en Dosti fyrst hann stefnir á að vinna að lokaverkefninu í sumar.

Þannig að nú geta allir farið að plana ferðir hingað óhindrað og öll spilin komin upp á borðið.

Ég komst bara í sumarskap við að skrifa þetta, vorið er líka alveg rétt bráðum að koma, er það ekki annars?

AnnaSoley

16 febrúar, 2007


kaffi3
Originally uploaded by Anna Sóley.
Endrum og eins tökum við Dosti okkur "söderdag", og njótum þess að búa í útlöndum. Þessar myndir voru teknar á slíkum degi í janúar einhverntímann. Þá förum við kannski seint um morguninn (því söderhverfið vaknar seinna en önnur hverfi), löllum um og í hádeginu laumumst við ofan í yndislegan ósýnilegan kjallara. Þar er alltaf stútfullt af fólki og indverskur matur á boðstólum. Nú svo kannski kíkjum við í eina uppáhaldsbúð, þar sem bara eru seldar ferðabækur og allt sem viðkemur ferðalögum, þar er sko hægt að láta sig dreyma endalaust. Eftir meira rölt er kominn tími á kaffi.

Í þetta sinn fórum við á þetta notalega kaffihús. Takið eftir því að við gluggana eru syllur þar sem fólk klifrar upp og situr á sokkaleistunum í nokkurskonar búri.

Venjulegir dagar eru yfirleitt, talva, borða, talva, borða, póstkassi, talva, borða. Svo þessir dagar eru lífsnauðsynlegir fyrir sálina:)


kaffi2
Originally uploaded by Anna Sóley.


kaffi1
Originally uploaded by Anna Sóley.

14 febrúar, 2007

Skíðaferð


Við förum í skíðaferð til Falun eftir rúma viku. Einn af dögunum verður helgaður Vasagöngunni og ég hef tekið mér að undanförnu parta úr heilum 2 dögum í æfingar fyrir hana. Ég mun reyna að klára dæmið en það er mælt með að hafa skíðað 300km fyrir þetta (en það er nú örugglega ekki svo nákvæmt haha). Annars finnst mér ekkert sérstaklega gaman á gönguskíðum og botna ekki alveg í því hvað ég er að rembast. Eiginlega finnst mér ekkert komast nálægt því að hjóla svo ég hef því ákveðið að hætta við allar aðrar keppnir en hjólakeppnir í sumar. Það verða hjólajól allt árið. Að lokum mæli ég með nagladekkjum á hjól, ég hefði aldrei trúað því hvað þau gera mikið. Það er hægt að fá mismunandi fjölda nagla í dekkin. Ég er með 240 stykki og ég hjóla um á svellbúntum eins og það sé sumar (ég er í alvörunni ekkert að pæla í undirlaginu). Þannig að hálka er engin hindrun fyrir hjólatúra á veturna. ÚFFF hvað þessi mynd gerir mann bílveikan.

11 febrúar, 2007

Árshátíð Íslendinga!















Vá hvað var gaman!!!
Binni, Manos og Sara úr skólanum.







20 ár síðan við vorum öll saman í MH!!!???? hmm...dís...

Páll Óskar og Skari Skrípó eru auðvitað þeir bestu í skemmtanabransanum eftir að ljónið át annan af Sigfried og Roy tvíeykinu. Það var dansað fram á rauða nótt.

07 febrúar, 2007

Logo reiðra grunnskólakennara!

Það er merkilegt að sjá þessa frétt. Fyrir 3 árum síðan voru grunnskólakennarar í kjaradeilu og RÚV notuðu alltaf þessa mynd af Þórdísi "reiðu" að skrifa kröfurnar á töfluna í Réttarholtsskóla.

Núna er hún farin að kenna í framhaldsskóla en þegar grunnskólakennarar verða ósáttir aftur leitar RÚV í gagnagrunninum að reiðum kennara og finna þessa gömlu mynd, poppa hana aðeins upp í Photoshop með skelfdum og óttaslegnum skólakrökkum.

Það er svo margt að þessum vinnubrögðum að maður veit ekki hvar maður á að byrja. En fyrir þá sem þekkja Þórdísi er kannski bara fyndið að hún skuli einmitt vera notuð þegar upp koma deilur og ósátt því það er varla til ljúfari manneskja á jarðríki. En RÚV er ríkisstofnun og það er spurning hvort Þórdís sé komin í gangagrunn yfirvalda um "troublemakers" og verði meinaður aðgangur að íþróttaviðburðum (já ég veit:) og flugvélum þar sem andlit hennar er borið saman við myndagagnagrunninn?

04 febrúar, 2007

bollaleggingar...


was
Originally uploaded by Anna Sóley.
ok það er komið "næst"...(við erum nebblega spennt að heyra viðbrögð).

Eins og sumir vita núþegar ætlum við að flytja til Bandaríkjanna næsta desember. Við erum búin að vera að skoða bækur um þetta risa svæði og lesa okkur til um borgirnar sem eru í boði. Höfum legið á netinu líka og spjallað við fólk. Borgirnar sem voru mest í umræðunni til að byrja með voru NY og San Fran. Einnig voru nefndar Philadelphia, Boston, Portland, San Diego, og kannski einhv fl.
Eins og flestir vita líka eigum við spæjaravinkonu og hún er frá Washington dc, sem var valmöguleiki sem okkur hafði ekkert dottið í hug. En með miklum sannfæringarkrafti hefur henni tekist að setja sína borg mjög ofarlega á listann okkar. Eftir að hafa séð myndir og heyrt lýsingar er ljóst að hún er allt annað en við höfðum ímyndað okkur. Hún er lágreist, mikið af grænum svæðum, gönguborg, mikil safna og matgæðingaborg. Fólk tengir hana bara við þessa þekktu minnisvarða en okkur skilst að þarna sé hægt að búa miðsvæðis í mjög vinalegum íbúðahverfum, sem er kannski mun erfiðara í t.d.NY eða San Fran. Fleiri kostir eru veðrið, árstíðir en STUTTUR vetur, og hún er á austurströndinni. Allavega hér eru myndir frá Washington.

Jæja látið gamminn geysa og allt flakka og allt það, líka ef þið lumið á draumaborginni...

AS og EB og rótlausa fjölskyldan:)

Vetrarmyndir


safn
Originally uploaded by Anna Sóley.
hæ allir,

síðasta helgi (sems. fyrir viku s.) var mjög róleg hjá okkur. Eitt gerðum við samt, það var að kíkja saman á alþjóðlegt safn. Það er með sýningar og fróðleik um allskonar lönd, náttúru og sögulega muni, allt frá Grænlandi til Perú. Þarna stendur Jana við risa módel af afrísku þorpi í Kongó. Það kom dagur og nótt til skiptis og hljóðin breyttust eftir því, rosalega flott.

Annars ekkert mikið nýtt, Ella og Sonja búnar að boða komu sína í byrjun mars, það er gaman:)

Miklar bollaleggingar um framtíðina, meira um það næst...

AS


vetur
Originally uploaded by Anna Sóley.
Jana horfir út á langþráða snjóinn.


snjor
Originally uploaded by Anna Sóley.
Horft út um svefnherbergisgluggann okkar.


gluggi_snjor
Originally uploaded by Anna Sóley.
Allt á kafi í snjó, horft út um fallega baðherbergisgluggann okkar.


jana_vetur
Originally uploaded by Anna Sóley.


rafmleysi
Originally uploaded by Anna Sóley.
Einu sinni í vetur kom óveður, sem var samt ekkert óveður, en það varð samt rafmagnslaust. Á borðinu má sjá spilastokk, lesefni og vasaljós.


kommi
Originally uploaded by Anna Sóley.
Kommi skrapp til okkar um daginn, kom úr 25 stiga frosti í n-svíþjóð, til okkar í "hlýjuna". Frábært að hitta hann, næst kemur hann með restina af fjölskyldunni.